þriðjudagur, október 25, 2005
HRÆÐILEG SKOTÁRÁS Á TÓNLEIKUM
Hryllileg skotárás var gerð á meðlimi rapp hljómsveitarinnar Thugz on Parole (ísl. Skúrkar á skilorði) þegar þeir héldu tónleika á fimmtudaginn. Tónleikarnir voru hluti af off venue dagskrá Airwaves hátíðarinnar og til að byrja með seinkaði þeim um klukkutíma. það stóð þó ekki í vegi fyrir góðri skemmtun og fyrsta lagi skúrkanna Bitches and Ho´s eða tíkur og hórur var gríðarlega vel tekið. á þriðja lagi skúrkanna réðust riddarar inní rómarborg og rændu og ruppluðu röppörum og rófum. þeir hófu mikla skothríð sem bitnaði þó helst á hljóðkerfi hressingarskálans, þar sem að meðlimir hljómsveitarinnar voru í skotheldum vestum og göllum. Fjölditónleikagesta lét lífið á hryllilegan hátt þegar gikkur uzi hríðskotabyssu annars ribbaldans sat fastur í nokkurn tíma. skúrkarnir voru þó fljótir að grípa til vopna sinna og var hausum rústað með haglabyssum, rúllettubyssum og krakkpípum.
eftir þetta miður skemmtilega atvik héldu tónleikarnir áfram, þó nokkuð hefði dregið úr hljómgæðum vegna skotárásinnar. aðalega heyrðist í bassanum og seinasta lag skúrkana "The Crack" féll fyrir daufum og syrgjandi eyrum.
þetta voru án efa minnst bestu tónleikar sem að skúrkarnir hafa haldið, en það kom ekki að sök vegna dauða lang flestra gagnrýnenda sem voru á staðnum.
en eins og sagt er hvalatyppi brunda mest, og þar við situr.
Comments:
Skrifa ummæli