miðvikudagur, júní 28, 2006
Sumarið, tími fyrir drive by.

Hver kannast ekki við að vera spólandi í snjó og frosti á veturnar og þurfa að taka með skóflu til þess að moka bílinn lausann þegar haldið skal í drive by. Nú sem betur fer virðist einungis þörf á að taka með regnhlíf (ásamt skotvopni) þar sem að sumarið er komið og loksins er hægt að ná sér niður á aumingjunum sem dissuðu mann einhverntíman í vetur. Ekki spillir fyrir að geta verið hipp og kúl með sólgleraugu, þar sem að miðnætursólin skín daginn út og inn. Takið gleði ykkar, skellið argasta bíboppi í græjurnar, rúntið niður laugarveginn og byrjið að plaffa, því eins og Meistari Haukur Mortens sagði: "Sumarið er tíminn, með konu í hverri höfn"
Comments:
Skrifa ummæli