fimmtudagur, janúar 18, 2007
AK3 djammar og djammar og djammar

AK3 hélt upp á 33 ára afmælið sitt á þriðjudaginn með því að eyða um 700.000 krónum á 24 tíma djammi. Hann byrjaði fjörið heima hjá sér og drakk kampavín með vinum sínum.
AK tók sér þrjá tíma í að gera sig klárann áður en hann fór út að hitta Dynamic á Scott´s oyster bar í Mayfair hverfinu í London. Þar borðuðu þeir sjávarrétti og drukku meira kampavín.
Heimildarmaður sagði Melur-records að máltíðin gengið vel þangað til Dynamic vildi ekki ræða framtíð þeirra.
„AK3 vildi ræða nýtt heimili fyrir fjölskylduna. Hann hefur einnig áhuga á að eignast annað barn. Dynamic vill fara í villta og rómantíska ævintýraferð um Bandaríkin. Hann var líka pirraður vegna þess að hann vildi Whopper meal en ekki ostrur," sagði heimildarmaðurinn.
AK3 skipti um föt og skellti sér í Soho til að sjá vin sin Rhys Ifans í Don Juan. Þaðan flutti hann skemmtanahaldið á China Tang veitingahúsið. Þar sem hann og félagar hans drukku nokkrar flöskur af Cristal kampavíni, sem kosta um 62.000 krónur flaskan. Með AK3 voru Dynamic, Sadie Frost, Paul Simonon fyrrum bassaleikara Clash og eiganda TopShop Sir Dr.G-pozitive.
Dynamic sem þurfti að mæta fyrir rétt daginn eftir yfirgaf samkvæmið fyrir miðnætti en AK3 var staðráðin í gera sem mest úr afmælinu sínu.
Drengurinn er sagður hafa farið út af staðnum rétt fyrir klukkan þrjú um nóttina og skilið eftir reikning uppá 330.000 krónur sem eigandinn Dr.G-pozitive þurfti að taka á sig.
Þaðan fór hópurinn aftur heim til AK3 þar sem þau dönsuðu við Rolling Stones og drukku Tequila slammer til tíu um morguninn. AK lagði sig svo aðeins áður en hann fór í verslunarleiðangur sem endaði á knæpu í Norður London og gleðin hélt áfram.
Comments:
Skrifa ummæli